Hægt er að komast í Orra á nokkra vegu, þ.e. mismunandi slóðir í vafra virka á eftirfarandi hátt:
- heima.orri.is gerir notendum kleift að nota Vinnustund hvar sem er, t.d. heima. Einnig geta stjórnendur samþykkt skráningar starfsmanna í Vinnustund, samþykkt ferðabeiðnir og rafræna reikninga í þessu viðmóti.
- oebs.orri.is gerir notendum kleift að nota öll kerfi Orra. Tengjast þarf á vinnustað í tölvu sem tengd er með netsnúru. Með þessari slóð komast notendur inn í Ferðabeiðnakerfi Orra ásamt öðrum kerfum svo sem Vinnustund.
- askur.orri.is er slóð beint inn á fjárhagsskýrslur, ekki önnur kerfi Orra og ekki í Vinnustund. Stjórnendur hafa aðgang að Aski.
Ef þig vantar upplýsingar um notandanafn þitt inn í Orra þá hafðu samband við sigrunloa@unak.is eða bokhald@unak.is